Klúður í ráðuneytinu

  • Framhaldskólinn á ekki að stjórna námsmati í grunnskólum

    eða innra starfi grunnskólanna

Varla hefur menntamálaráðuneytið ætlast til þess að skólarnir notuðu ekki töflureiknana til að reikna út einkunnir. Eða áttu bókstafirnir ekki að hafa neitt talnalegt gildi.

Síðan hafi hin ýmsu atriði í matsgerðinni misjafnlega mikið vægi sem fer eftir áherslum hvers skóla fyrir sig og út frá skyldum skólans að taka mið af einstaklingsgetu hvers nemanda.

Til útskýringar, að þá hafa allar námsgreinar margar undirgreinar sem hafa mismikið vægi í kennslunni og því hljóta einkunnir hverrar undirgreinar að hafa misjafnt vægi þegar að því kemur að gefa eina einkunn fyrir t.d. íslensku svo dæmi sé tekið.

 
Nemendur tíunda bekkjar fengu misháa bókstafseinkunn við útskrift eftir því í hvaða grunnskóla þeir voru. Stór hluti nemenda sem útskrifaðist í vor uppfyllir ekki lágmarkskröfu til þriggja ára framhaldsnáms.
RUV.IS
 
  • Þetta sem Jón Pétur Zimsen sagði í morgunútvarpinu er rétt og er t.d. grunnurinn að því að hægt sé að kenna list -og verkgreinar.
    *
  • Allar list- og verkgreinar byggjast í grunninn á ákveðinni þekkingu á þessum breiðu greinum, síðan kemur verkleg færni, skapandi færni og gæðavitund.

Út á það skal kennslan ganga en um leið er færni lykilþáttur sem byggir á tækniþekkingu nemandans og færni til að nota rétta tækni sem grunnurinn til að geta náð færninni.

Þá kemur að skapandi þáttum greinanna, ekki dugir að hafa þekkingu og færni í lagi því ef skapandi þátturinn er ekki í lagi verður sú þekking að engu

Loks að gæðamálin, þ.e.a.s. að nemandin viti hvað sé vel gert og hvað ekki.

Allt þetta verður að fylgjast að svo nemandinn nái markmiðum sínum og hafi haft gagn af námi sínu.

Þetta eru einnig lykilþættir í öllu námi því allar greinar byggjast í raun á þessum sömu þáttum.

Síðan verða allir þessir þættir að vera mælanlegir og um leið túlkanlegir. Það verður að vera til kvarði sem mælt er með, annars verður ekkert mælt.

 
Jón Pétur Zimsen, skólastjóri Réttaholtsskóla í Reykjavík, segir að samkvæmt námsskrá frá 2011 og 2013 hafi orðið eðlisbreyting á grunnskólanámi. Forystu hafi vantað frá menntamálayfirvöldum og sveitarfélögum til að innleiða þá breytingu og námsmat sem…
RUV.IS
 
 

 


mbl.is Misræmi í einkunnagjöf grunnskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband