17.7.2016 | 15:53
Er uppreisn almennings í uppsiglingu?
- Er almenningur að rísa upp gegn ofríki lögreglunnar víða í Bandaríkjunum?
Það merkilega er, að ekkert er minnst á múslima í þessum fréttum. Þeir eru gjarnan gerðir að blórabögglum síðustu misserin.
Það var a.m.k. sláandi þarna í Dallas um daginn þegar lögreglan ætlaði að grípa til hólkanna.
Sáu lögreglumenn að allt í kringum þá stóð sauðsvartur almúgurinn, allir með vélbyssur í höndum. Löggumenn urðu bara að leggja niður rófuna og forða sér, en ekki án fórna.
Eitthvað er að fara úrskeiðis í fyrirheitna landinu?
Greinilegt er að ofbeldi gagnast ekki endalaust til kúgunar.
RÚV segir að Þrír lögreglumenn hafi verið skotnir í borginni Baton Rouge í Louisiana-fylki í Bandaríkjunum nú rétt í þessu, eða um níuleytið í morgun að staðartíma.
Lurkur er þetta.
Þrír lögreglumenn skotnir til bana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt 18.7.2016 kl. 08:48 | Facebook
Athugasemdir
Við frekari morð á lögregluþjónum verða viðbrögð alríkisstjórnarinnar þau að setja á herlög, án þess að spyrja almenning. Líklega styttist í það.
Kolbrún Hilmars, 17.7.2016 kl. 17:11
Eins og er er þetta ekkert allur almenningur. Bara smá deild þeirra.
En það þarf engin herlög: bara banna skotvopn, og þá er hægt að byrja kúgunina fyrir alvöru.
Það hefur alla tíð þótt sjálfsagt meðal yfirvalda um allan heim að plaffa á óvopnaða borgara. Miklu vinsælla en að plaffa á vopnað fólk.
Ásgrímur Hartmannsson, 17.7.2016 kl. 17:38
ég er byrjaður að taka þátt i uppreisn gegn eylitunni geri það með tönnunum og peningaveskinu,vesla ekki við alþjóða fyrirtæki ef ég mögulega kemst hjá því
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 17.7.2016 kl. 23:08
Segðu Frökkum að banna skotvopn sé svarið við ódæðisverkum sem hafa verið framin í Frakklandi.
Samkvæmt athugasemd Ásgríms Hartmannssonar þá er næsta skref í Frakklandi að banna ökutæki.
Kveðja frá Seltjarnarnesi
Jóhann Kristinsson, 18.7.2016 kl. 07:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.