Vaxandi líkur á því að Sigmundur Davíð nái ekki kjöri

  • Ljóst er, að hörð átök eiga sér stað baksviðs í Framsóknarflokknum.
  • A.m.k. ef Sigmundur Davíð ætlar sér að verða leiðtogi þessa flokks áfram.
    *
  • Nema að plottið gangi út á það innan flokksins, að hann fari gegn Eygló í suðvestur er skapar klofningshættu.

eygló-1

Það er dagljóst að Eygló gengur um bratt einstigi í Framsóknarflokknum.

Hún er í raun eini núverandi þingmaður flokksins sem hefur reynt að feta slóð félagshyggjunnar sem ekki hefur tilkynnt um að til standi að hætta á þingi.

Það er enginn einhugur um sigmundur Davíð 3
formanninn í norð-austurkjördæmi
og jafnvel er þar mikið andstreymi gegn Sigmundi Davíð.

Gunnar Bragi og Ásmundur Einar hafa verið hans nánustu samstarfsmenn og varla hjólar hann í þá til viðbótar kemur Lilja sem ætlar sér í Reykjavík suður. 

Hann á ekki séns gegn núverandi forsætisráðherra.

Það verður fróðlegt að sjá hvar kraftaverkamaðurinn ætlar sér að bera niður. Eitt er þó mikilvægt að hafa bak við eyrað, að hann á lítið fylgi á höfuðborgarsvæðinu.   

Eins og staðan er nú verður hann að berjast hart fyrir sæti á vænlegum framboðslista og miklar líkur á því að hann komist ekki á þing.

Enginn flokksmaður segir opinberlega að hann ætli gegn honum á landsfundi. En um leið er ljóst, að enginn ætlar sér að gefa honum rými á framboðslista.


mbl.is Tekist á um oddvitasætin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband