18.8.2016 | 21:28
Ofbeldis viðhorf.
- Þessi viðhorf Ragnheiðar varpar greinilega ljósi á það hvernig það er fyrir aðra stjórnmálaflokka að eiga samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Það hefur gjarnan verið aðferð þessa flokks að bera samstarfsaðila ofurliði. Einfaldlega er snúið upp á handlegg þeirra sem hafa önnur viðhorf.
Oftast hefur þessi flokkur haft yfirburðarstöðu í landsstjórninni og hefur getað skipt um samstarfsaðila eftir hentileikum.
Er slíkt gjarnan haft í hótunum undir rós. Í mörgum sveitarfélögum hefur þessi flokkur einnig getað beitt þessu ofbeldi.
Það er nákvæmlega ekkert lýðræðislegt við slík ofbeldis sambönd.
Það er vitað, að líklega er Eygló eini alþingismaður Framsóknar sem er með félagsleg viðhorf sem á í samstarfi með frjálshyggju mönnum.
Það sést greinilega að félagsmálaráðherrann hefur á öllu kjörtímabilinu átt í styrjöld við Sjálfstæðisflokkinn.
Eftir að flokkurinn veiktist í samstarfinu hefur staða hennar einnig veikst. Það á enginn flokkur að geta sýnt af sér slíkt ofbeldi.
Þetta skýrir auðvitað , hvers vegna margir stjórnmálaflokkar geta ekki starfað með þessum flokki.
Það hafa reyndar fleiri félagsmálaráðherrar reynslu af Sjálfstæðisflokknum.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, er ekki lengur með í liðinu og getur ekki gert miklar kröfur um að fá framgang annarra mála á meðan hún styður ekki það sem aðrir ráðherrar eru að fá.
Þetta segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, við RÚV. Þetta er gamli gammbíturinn. En lýsir um leið andstöðu Sjálfstæðisflokksins við baráttumál Eyglóar með þessum orðum.
Finnst þetta ekki boðleg taktík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt 19.8.2016 kl. 13:29 | Facebook
Athugasemdir
Sverja ekki þingmenn eið að því að láta samvisku sína ráða ferð?
Hilmar Guðmundsson, 18.8.2016 kl. 22:16
Rétt hjá þér Hilmar.
En ég er enginn fylgismaður Eygló og hún á að segja af sér vegna vangetu og afglapa í starfi, sömuleiðis eiga hinir 62 þingmennirnir að segja af sér af sömu ástæðu og Eygló.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 19.8.2016 kl. 05:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.