17.12.2016 | 20:31
Hæ meiri, þyngd og meira yndi
- Jólaþáttur Nigellu Nigella Xmas Special 15/12/2016 - 20:05
* - Það ótrúlegt, að nú á síðustu og bestu tímum eru matreiðsluþættir í sjónvarpi með vinsælustu þáttum sjónvarpsstöðvanna.
Fólk horfir á þættina með munnkirtlana á fullu og sannar þar kenningu Ivan Petrovich Pavlov, nóbelsverðlaunahafa í lífeðlisfræði um skilyrðingu.
En þetta verður að teljast undarlegt á tímum þegar þjóðin þyngist ótrúlega ört og stór hluti fólks sem maður mætir á götu eða hvar sem er í gríðarlegri yfirþyngd.
Maður veltir því fyrir sér hvers vegna RÚV leggi ekki áherslu á að sýna matreiðsluþætti þar sem lögð er áherslu á hollan mat, án ofsykrunar á mat.
Er það kanski vegna þess, að einhverstaðar á bak við tjöldin eru fjölþjóðafyrirtæki sem kosta svona áróðursþætti fyrir ofneyslu á sykri? Eða vegna þess að lífeðlisfræðingurinn var Rússi?
Konfektgerð mæðgnanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Matur og drykkur, Kjaramál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.