Spillingunni bjargað?

  • Sukk og svínarí

Þetta er íslenska stjórnarfarið eins og það hefur verið tíðkað frá öndverðu af gömlu valdaflokkunum á Íslandi.

Það er Framsókn og Sjálfstæðisflokkur sem eru þeir stjórnmálaflokkar sem hafa leitt allar ríkisstjórnir á Íslandi að undanskildri þeirri sem starfaði í 4 ár og varð að bjarga þjóðinni frá hruni. Vegna spillingar þessara flokka og vanhæfni.

Þessir flokkar hafa alltaf haldið að sér öllum spillingarspilum og gætt þess að þjóðin fengi ekki réttar og eðlilegar upplýsingar í gegnum Alþingi.

Einn stór aðili þessa máls sem er fjármálaráðherra og formaður stærri spillingarflokksins lét sína menn ganga í verkin til eyða sem flestum vegsumerkjum um Panama vansann.

Réttu vinnubrögðin hefðu átt að vera þau að Alþingi hefði átt að láta rannsaka þetta mál en ekki fjármálaráðherra sem sjálfur er innvinklaður í subbuskapnum.

Skýrsla um umfang skattaskjólseigna hefur verið tilbúin í fjármála- og efnhagsráðuneytinu frá því í byrjun október, en hefur ekki enn komið fyrir Alþingi eða verið gerð opinber með öðrum hætti. Sér­stakur starfs­hópur sem Bjarni…
KJARNINN.IS
 

mbl.is Einhugur um samstarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband