Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Gamlir úreltir ryðkláfar íhaldsins sjá ekki spillinguna sem nú vex

  • Björn sá hana heldur ekki fyrir hrunið
    *
  • Kaldastríðs agentinn áttar sig ekki á því, að málið snýst ekki um kosningar

    heldur það sem mikilvægast er, að segja þjóðinni frá spillingarliðunum á Alþingi.
    *
  • Að stjórnarandstöðu flokkarnir geti sagt þjóðinni frá því, að þeir tilheyra ekki þessu spillingarliði

Minnihlutinn á Alþingi gerir sér engar  grillur um að ríkisstjórnin segi af sér, það þyrfti þá kraftaverk að gerast svo slík réttlætissýn geti blossað upp í sinni flokksfélaga Björns Bjarnasonar.

  • En bakland þessara stjórnmálaflokka sem nú halda um stjórnvölinn krefjast þess að stjórnin dugi fram í rauðan dauðan, vegna hagsmuna sinna.

björn bjarnason

Þetta snýst fyrst og fremst um, að minnihlutaflokkarnir eru að láta það bókfærast í bækur Alþingis, að þeir tilheyri ekki þessu spillingarliði sem sumir ráðherrarnir virðast vera hluti af.

  • Þjóðin fær þá að vita það formlega.  

En einn gamall félagi Björns hefur áttað sig á alvarleika málsins, eins og Styrmir Gunnarsson gamli ritstjóri Morgunblaðsins í áratugi og húsbóndi Björns sem var fyrst og fremst áróðursmeistari flokksins á blaðinu í „Kalda stríðs áróðrinum“  sem varð skyndilega úreltur. Það var sérlega aumt hlutverk.

tvíburarnir 

Pistill Styrmis á Pressunni er góður og fer hann líklega nálægt staðreyndum þessa máls.

Þessi pistill er a.m.k. miklu heiðarlegri en það sem Þorsteinn Pálsson lét frá sér fara um sama málefni í útvarpi. Þorsteinn virðist aldrei geta komið sér upp úr hjólförunum.

Það er einnig rétt ábend hjá Styrmi þegar hann segir:
,,Loks segir Styrmir að sýna verði ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sanngirni. Jóhanna hafi á sínum tíma notið mest trausts til að stjórna þjóðarskútunni og ríkisstjórn hennar stóð frammi fyrir yfirþyrmandi vandamálum sem þurfti að leysa strax. Þess vegna megi skilja að kraftar og athygli þeirrar ríkisstjórnar hafi ekki snúist um hinar dýpri sálrænu þarfir þjóðarinnar".

Það er auðvitað rétt, að ein ríkisstjórn sem auk þess var í raun minnihlutastjórn í marga mánuði hafði ekki nægilegt afl til að takast á við erfiðustu málin. Heldur ekki til að fara á dýptina.

Það má einnig benda á, að fylgi þessara fylkinga í atkvæðum í síðustu kosningum talið var um 51% og 49%. Eiginlega minnsti mögulegi munur. Þingmannafjöldinn fór á núverandi stjórnarflokka vegna hinnar gríðarlegu tvístrunar  sem varð á framboðum á vinstri vængnum.

Almenningur hefur orðið vitni að því, að gamli spillingargrauturinn er kominn upp á yfirborðið á nýjan leik og eldri þingmenn eru komnir sömu hagsmuna-baráttuna og áður fyrir hina og þessa sem eiga stór erlend fyrirtæki.

Það má m.á. sjá á tjónkun þeirra við þessi fyrirtæki er snertir t.d. virkjanna- og  skattamál. Hver spræna skal virkjuð í þágu þessara aðila.

Langflestir klækjarefirnir virðast hafa náð vopnum sínum á ný, þar sem þeim stærstu hafði verið gefið tækifæri til að komast undan með þá peninga sem voru voru geymdir í gjaldþrota bönkunum til skattaparadísaeyja. En almenningur sat eftir með skuldir þessara aðila við bankanna.

Þegar svo í ljós kemur að forystumenn eru með fé í skattaskjólum og sitja beggja megin við samningaborðin þegar tekist er á við hrægammanna og skattsvikaranna er í raun öllum lokið.

Þetta er auðvitað fyrst og síðast spurning um siðgæði og heiðarleika sem verður að gera kröfur um að stjórnmálamenn séu með í lagi og uppfylli.

 

„Fólk skilur ekki og mun ekki skilja hvers vegna betra er að geyma eignir á slíkum eyjum en á þeirri, sem við búum á,“ segir Styrmir Gunnarsson sem telur að framundan sé annað uppgjör eftir hrun og að það geti orðið ljótt.
EYJAN.PRESSAN.IS
 

mbl.is Þingrofstillögunni vísað frá?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármálaráðherra er hagsmuna aðili þegar kemur að skattamálum þeirra sem eiga eignir í skattaskjólum

Er ekki fjármálaráðherran vanhæfur til að fjalla um skattamál þeirra sem eiga eignir í skattaskjólum?

  • Maður spyr sig auðvitað, eftir að upplýst var um eignir fjármálaráðherrans í skattaparadísum.
    *
  • Hvort ráðherrann sé þá ekki vanhæfur til að fjalla um skattaskuldir þeirra sem eiga eignir í Skattaskjólum.
    *
  • En þann 06.03.2015 tilkynnir hann, að hann ætli að leggja fram frumvarp um skattleysi þessa fólks.
 
Fjármálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp þess efnis að ekki verði refsað vegna brota á skattalögum hjá þeim sem sjálfviljugir gefa upp vantaldar tekjur eða eignir, sem geymdar eru í skattaskjólum. Refsileysið gildir á árstímabili, frá júlí 2015 til loka júní 2016.
RUV.IS
 

mbl.is Verulegt skattahagræði hjá Vilhjálmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki fjármálaráðherran vanhæfur til að fjalla um skattamál þeirra sem eiga eignir í skattaskjólum?

  • Maður spyr sig auðvitað, eftir að upplýst var um eignir fjármálaráðherrans í skattaparadísum.
    *
  • Hvort ráðherrann sé þá ekki vanhæfur til að fjalla um skattaskuldir þeirra sem eiga eignir í Skattaskjólum.
    *
  • En þann 06.03.2015 tilkynnir hann, að hann ætli að leggja fram frumvarp um skattleysi þessa fólks.
 
Fjármálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp þess efnis að ekki verði refsað vegna brota á skattalögum hjá þeim sem sjálfviljugir gefa upp vantaldar tekjur eða eignir, sem geymdar eru í skattaskjólum. Refsileysið gildir á árstímabili, frá júlí 2015 til loka júní 2016.
RUV.IS
 

mbl.is Funda með skattrannsóknarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vindhöggin ógurlegu

  • Ég fékk mér kaffi á kaffistofu okkar gamlingjana Kringlunni í dag og fyrir einstaka tilviljun kíkti ég í Moggann. Hann bara lá þarna á borðinu í flottu dívanbroti. 
    *
  • Þar sem þröng var á þingi á kaffistofunni er þægilegt að lesa þetta blað þar sem það tekur lítið pláss.

Þá sá ég að blaðið nýtti sér nær heila opnu í að fjalla um Vilhjálm Þorsteinsson fjárfesti og  fyrrum gjaldkera Samfylkingarinnar sem þá hafði þegar axlað sína ábyrgð.  Mér fannst reyndar þá að þetta væri ansi seint í rassinn gripið.

Þetta er auðvitað dýrmætt pláss í þessu blaði sem er með sárafáar síður.  Mér fannst umfjöllunin auðvitað vera eitt hallærislegasta vindhögg  síðari tíma.

tvíburarnir

Þar sem gjaldkerinn hafði vit á því að segja af sér þegar upp um hann komst.  En hann var bara gjaldkeri úti í bæ í hálflömuðum stjórnmálaflokki að margir telja.

  • En auðvitað er Mogginn að skamma sína menn, ráðherrana í Sjálfstæðisflokknum sem virðast hafa misst alla stöðu gagnvart forsætisráðherranum.
    *
  • Nú er snöggtum erfiðara að gera þá kröfu að víxlað verði ráðherrum og Sjálfstæðisflokkurinn fái forsætisráðherra sætið
    *
  • Þannig að Sigmundur Davíð neyðist til að taka ráðherrasæti þar sem hann verður ekki vanhæfur.Það gæti verið utanríkisráðherra sætið.

Þetta er sama aðferðin og hjá sómakærum samlyndum hjónum í vesturbænum sem verða að fá sér hund. Til þess eins að hjónin geti skammast hvort í öðru í gegnum hundinn.

Mogginn notar fyrrverandi gjaldkera sem skyldi sinn vitjunartíma og sagði af sér í umvandanir sínar.

Mogginn ætlast auðvitað til þess, að forsætisráðherrann geri það einnig og Bjarni Benediktsson undir stjórn ritstjórans taki sætið. Skýrari geta skilboðin tæpast verið.


mbl.is Ómögulegt að sannreyna yfirlýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gull fólkið á Íslandi. Fólkið sem var og er hampað mest.

Listi yfir afskriftir fyrirtækja í kjölfar efnahagshrunsins 2008 (Wikipedia) 

Þetta er listi yfir afskriftir fyrirtækja í kjölfar efnahagshrunsins 2008: Tekið er fram hvaða fyrirtæki fékk afskriftirnar (debt write-off) - hversu háar þær voru og hvenær þær fóru fram og hvaða banki afskrifaði.

Hafa ber í huga að afskriftir skulda fyrirtækja eru á kostnað bankanna og kröfuhafa þeirra. Þær eru ekki greiddar af skattborgurum eða almenningi. [1]

Í svörum efnahags- og viðskiptaráðherra, Árna Páls Árnasonar, við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar á Alþingi 2011 kom fram að afskriftir til fyrirtækja og hlutafélaga námu 480 milljörðum króna af alls 503 milljarða afskriftum lána í bankakerfinu á árunum 2009 og 2010. [2] [3]

 


Virkjanir, fyrir hverja?

  • Það er auðvitað grundvallar spurning sem ráðherrar og alþingismenn verða að svara.
    *
  • Fyrir hverja á að virkja? Það vantar að vísu raforku fyrir fiskvinnslu og stór skip í íslenskum höfnum.
    *
  • Annað væri ekki fyrir íslendinga.
    *
  • Það er engin þörf á frekari stórvirkjunum í næstu framtíð fyrir þjóðina.
    *
  • Mikill meirihluti þjóðarinnar vill ekki meira af erlendum stóriðjufyrirtækjum inn í landið.
    *
  • Þess vegna er alveg óhætt að hægja verulega á Landsvirkjun

Vert er að minna á það,að Samorka eru hagsmunasamtök um að viðhalda sjálfum sér og heldur uppi virkri pólitískri umræðu um virkjunarmál.

Sem er að vissu marki mjög óeðlilegt, því hagsmunir neytenda og þessara samtaka fara ekki saman.

Svona kynna þessi samtök sig og það er mikilvægt að hafa í huga, að það er almenningur sem kostar rekstur þessa félags með hærri gjöldum fyrir afurðir orkufyrirtækjanna. 


  

Samorka

Samorka eru samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Samtökin voru stofnuð árið 1995 við samruna Sambands íslenskra hitaveitna (stofnuð 1980) og Sambands íslenskra rafveitna (stofnuð 1942). Innan samtakanna starfa fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, raforkuframleiðendur, raforkusalar og flutnings- og dreifingarfyrirtæki raforku. Ýmis fyrirtæki og stofnanir sem tengjast orku- eða veitufyrirtækjum með einhverjum hætti eru aukaaðilar að Samorku.

Til­gangur sam­bandsins, skv. lögum þess, er:

  • Að stuðla að fram­gangi sam­eigin­legra áhuga- og hags­muna­mála fé­laga þess.
  • Að gæta hags­muna fé­laga og koma fram fyrir hönd þeirra í málum, sem æski­legt er að þeir standi að sem einn aðili.
  • Að safna gögnum og upp­lýsingum, sem varða starfs­svið SAM­ORKU og ein­stakra fé­laga þess.
  • Að efna til og taka þátt í mótum og ráð­stefnum, þar sem fjallað er um sam­eigin­leg mál fé­laga eða mál er varða ein­s­tök fag­s­við sam­bandsins.
  • Að halda uppi tengslum og sam­skiptum við hlið­stæð sam­tök og stofnanir, inn­lendar og erlendar, og veita stjórn­völdum og öðrum aðilum upp­lýsingar og um­sagnir.
  • Að stuðla að rannsóknum og miðla upp­lýsingum og fræðslu til fé­laga sinna og stjórn­valda.
  • Að bæta hag og öryggi notenda er tengjast veitu- og orku­ker­fum fé­laga, m.a. með því að veita þeim hag­nýtar upp­lýsingar um notkun á raf­magni, heitu og köldu vatni.
  • Að stuðla að traustum og hag­kvæmum rekstri þeirrar starf­semi sem fé­lagar stunda.
  • Að standa fyrir og kynna sameiginlega sjónarmið við virkjun og nýtingu endurnýjanlegra orkulinda landsmanna.

Samorka hefur unnið fjölmörg sameiginleg verkefni s.s. Handbækur hita- og vatnsveitna, Tæknilega tengiskilmála raforkudreifingar; Reikningsskilahandbók; leiðbeiningar um innra eftirlit fyrir raf- og vatnsveitur o.fl. 

Samorka annast sameiginlegt fundahald, ráðstefnur og samkomur.

Endurmenntun og menntun starfsmanna aðildarfélaga er mikilvægur þáttur starfseminnar. Fagnámskeið í sérhæfðum störfum veitufólks eru haldin reglulega, ýmist beint á vegum samtakanna eða í samvinnu við aðra.

 

 

 
Í skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem unnin var fyrir verkefnisstjórn 3. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar, á landsvísu kemur fram að 60 prósent landsmanna eru andvíg því að virkja til að auka stóriðju á Íslandi en 15…
KJARNINN.IS
 

mbl.is Ekki spurt um hagkvæmni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ég skil ekki þessa frétt.

Ég hefði haldið að þetta slys hafi fyrst fremst komið þessum handboltamanni illa og verið áfall fyrir hann.

Þann kann að vera að maðurinn jafni sig aldrei til fulls af þessu slysi.

Þessir boltaleikir skipta nánast engu máli við hliðina á áfalli þess manns..


mbl.is Áfall fyrir Dag og Alfreð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattaskjólin og stjórnarflokkarnir

  • Ég geri ráð fyrir því að fólk eldra en píratar kanski muni vel eftir því þegar tveir miklir boltar í íslenskri pólitík.

Þeir Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson tölu mikið um það sem mikla möguleika fyrir Ísland að gerast svona skatta skjól.

Davíð og Halldór

Í framhaldinu fóru skattar að lækka á atvinnurekendum og eigendum fyrirtækja í landinu og samþykktar voru ýmsar hagræðingar fyrir þá sem hugsanlega vildu geyma fé á Íslandi.

Reyndar var þá búið að finna upp 10% fjármagnstekjuskattinn sem er nettóskattur fyrir íslenska fjárfesta.

Þannig gátu atvinnurekendur einnig nýtt sér þá leið og gerðust fjárfestar í eigin fyrirtækjum. Skattar launafólks eru brúttóskattar sem hækkuðu í kjölfarið.

En það bara stóð á erlendum peningaeigendum sem vildu geyma hér fé 
 


mbl.is Óhræddur við að ganga til kosninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vindmyllu busl Framsóknar.

  • Margir hafa haldið því fram að brölt Vigdísar Hauksdóttur og Framsóknarflokksins muni skaða VG.

En hér er viðtal við við Steingrím J Sigfússon þar sem hann fagnar þessum hugmyndum Framsóknarmanna um að aflétta allri leynd af öllum málum bankanna bæði nú eftir hrun og frá því að þeir voru einkavæddir á sínum tíma.

Steingrímur J

Þá vill hann einnig að aukasamningur Innistæðutryggingasjóðs við Innistæðusjóðinn í Bretlandi.

þar sem núverandi stjórnvöld hafa samþykkt að greiða þeim bresku 20 milljarða til viðbótar við fyrri greiðslur vegna Icesave.

En það hvílir leynd yfir þessum samningum núverandi ríkisstjórnar undir forystu Sigmundar Davíðs.

 

mbl.is Telur að stjórnin standist tillöguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekkir greinilega sinn vitjunartíma

  • Það er eðlilegt að hrósa Vilhjálmi fyrir snögg viðbrögð hans er hann sagði sig frá trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna.
    *
  • Greinilegt er, að hann þekkir sinn vitjunartíma. Reyndar skil ég ekki erindi hans inn í verkalýðsflokk eins og Samfylkingin var stofnuð til að vera.

Engin veit um stöðu pírata varðandi skattaskjól. Líklegt er einmitt að það séu margir í þeirri stöðu þar á bæ. Einnig í flestum stjórnmálaflokkum og hagsmunasamtökum.

Þá er rétt að benda á þá staðreynd, ef píratar komast í ríkisstjórn verða þeir auðvitað hluti af fjórflokknum alveg eins og vinstri flokkarnir eru sagðir vera það sem eru aðeins 16 ára.

Fólkið sem styður pírata á sér sömu rætur og fólkið sem stofnuðu núverandi vinstri flokka 1998. Sama fólkið.

Það er eðlilegt að það komi fram, að verkalýðurinn á Íslandi er ekki sökkvandi skip og ekki heldur stjórnmálaflokkar hennar og verkalýðssamtök. En það gengur oft á ýmsu og þannig hefur það verið allar götur frá 1906. Enda lýðræðisleg samtök frá 1938.


 
Íslenskt eignarhaldsfélag Vilhjálms Þorsteinssonar, fjárfestis og gjaldkera Samfylkingarinnar, er fjármagnað af eignarhaldsfélaginu Alamina Ltd. í skattaskjólinu…
STUNDIN.IS
 

mbl.is Hættir sem gjaldkeri Samfylkingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband