3.7.2013 | 09:27
Kennir þjóðinni, að óhæft er að láta hagsmunasamtök ráða samfélaginu eða stofnunum þess
- Gunnar S Björnsson fyrrum formaður hagsmunasamtaka byggingaverkataka á Íslandi
. - Varð síðar starfandi stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs og leysti Guðmund Bjarnason af í leyfi og starfaði þá sjálfur sem framkvæmdastjóri sjóðsins. Er hægt að hugsa sér meiri spillingu?
Hafi verið runnin undan slíkum spillingarvinnubrögðum. A.m.k. fengu byggingarfyrirtækin lán til að byggja íbúðir í hundraðavís án þess að hafa kaupendur að framleiðslunni og án þess að leggja fram traustar tryggingar fyrir lánunum.
Það er ekki einleikið hvernig byggingaverktökum voru tryggð völd og áhrif í þessari lánastofnun. En neytendur áttu aldrei slíka fulltrúa til að gæta hagsmuna almennings.
Þetta mátti sjá bæði á austurlandi í tengslum við álversmartröð þjóðarinnar og á Suðurnesjum. En einnig á fleiri stöðum enda hafa íbúðir staðið ónotaðar í þúsundavís í landinu án þess að til væru kaupendur af þeim.
Þetta gerðist löngu fyrir hrun.
Hrun Íbúðalánasjóðs er auðvitað hluti af hruninu og hrunflokkarnir eru ekki með hreinan skjöld í málinu þótt þeir núna vilji gleyma þessu og horfa til framtíðar.
Voru á rangri braut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:29 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.