28.9.2013 | 09:42
Markt er líkt með skyldum
- Repbúlikanar í Bandaríkjunum vilja rífa niður tilraunir Baracks Obama til að byggja upp nýtt og betra heilbrigðiskerfi sem gagnast betur öllum almenningi í þessu guðsvolaða ríki.
- .
- Við mörlandar hefðum haldið að nærtækara væri fyrir Bandaríkin að draga svolítið saman í hernaðarútgjöldum
Hér á landi hefur fólk skiljanlega verulegar á áhyggjur af íslenska heilbrigðiskerfinu og sérstaklega af Landsspítalanum sem hefur verið flaggskip íslenska velferðarkerfisins.
Hinir íslensku Repbúlikanar í Sjálfstæðisflokknum hófust handa við að rífa niður íslenskt heilbrigðiskerfi strax 2003 og við hrun samfélagsins 2008 var það í raun komið að fótum fram. Síðan hefur enn verið tálgað utan af kerfinu frá hruni.
Nú hefur fyrrverandi forstjóri Landsspítalinn fengið að kíkja í fjárlaga frumvarpið er snýr að Landsspítalanum og heilbrigðiskerfinu. Viðbrögð hans voru snögg, hann sagði af sér í hvelli.
En það er ekki bara að Landsspítalinn sé staddur við hengibrúnina, ástandið á landsbyggðinni er hrikalegt í einu orði sagt, búið er að rýra alla heilbrigðisþjónustu við fólk í dreifðustu byggðum landsins.
Ríkisstofnanir búa sig undir lokun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Kjaramál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:49 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.