15.10.2013 | 20:57
Eru menn að halda því fram, að opinberir starfsmenn vinni ekki fyrir 15,5% framlagi sínu í þennan eftirlaunasjóð?
- Almenningur er einmitt látinn halda, með þeirri umræðu sem haldið er uppi af hálfu margra. Framarlega í slíkum áróðri eru samtök atvinnurekenda á almennum vinnumarkaði. Einstaka verkalýðsforingi lætur einnig narra sig í slíkan málflutning.
Það hefur alltaf verið ljóst að launamenn standa fyllilega undir öllum greiðslum í lífeyrissjóðina. Er þá sama hvort þeir starfa á almennum vinnumarkaði eða eru opinberir starfsmenn.
Það er ekki sök opinberra starfsmanna að ríkisvaldið hefur aldrei frá upphafi þessa kerfis staðið við að skila hluta af umsömdum launum opinberra starfsmanna í lífeyrissjóðinn. Það að greiðsluhlutfallið er of lágt sínir aðeins að núverandi lífeyrissjóðakerfi launamanna í landinu stendur ekki undir nafni.
Það gengur ekki upp.
Þyrfti að hækka iðgjaldið í 20,1% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:19 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.