Flokksdindlar krefjast nú nýs seðlabankastjóra

 

  • Ekki gangi að hafa óflokksbundinn mann sem seðlabankastjóra. 

Allmargir heimalningar og heimaríkir móarakkar í Hádegismóum sem er staðsett í suðursveit Mosfellssveitar hinnar fornu, þ.e.a.s. áður enn Reykjavík reyndi að bjarga Milljónafélaginu, standa nú í miklum stórræðum. En hæg eru heimatökin á þessum bæ, en þar er verkkunnáttan fyrir hendi og öll tæki og tól.

Þeir hafa nú að undirlagi húsbónda síns hafið undirskriftarsöfnun meðal réttborinna manna þar sem er skorað á Davíð Oddsson að gerast seðlabankastjóri að nýju. Hann einn hefur reynslu af því að stýra seðlabanka á Íslandi sem hafi nóg fé innanborðs og geti veitt á báðar hendur.

Til vara hafa þeir tilnefnt Geir Haarde sem hefur meistaragráðu í hagfræði og reynslu af viðbrögðum við hruni á Íslandi. En kvartað hefur verið undan því að honum skuli ekki hafa verið veitt doktorsgráða á Íslandi eða í nágrannaríkjum Íslands.

Það er enginn vafi, að þessir tveir heiðursmenn hafa það vit og hæfni, (hugur og hönd) að hafa allra manna mestu reynslu og yfirsýn yfir hrunmál á Íslandi.


mbl.is Sakaði Sigmund um að veitast að Seðlabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hræsnari ertu.

MM (IP-tala skráð) 19.11.2013 kl. 16:31

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Á þetta að vera brandari?

Guðjón Sigþór Jensson, 20.11.2013 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband