9.3.2015 | 21:41
Sá þykist loðinn um lófanna
- Árni Sigfússon, fyrrverandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ og núverandi oddviti sjálfstæðismanna í minnihluta bæjarstjórnar, segist bera ábyrgð á þeirri stöðu sem komin er upp í fjármálum bæjarfélagsins.Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.
* - RÚV birtir strax viðtal við Árna á jákvæðum nótum og honum gefið færi á því að hrósa sjálfum sér í leiðinni
- Það er greinilegt að einelti hægri flokkanna á Íslandi skilar þeim árangri að RÚV hefur lang-oftast viðtöl við forystumenn í þessum eineltis-flokkum tveim og það langt út fyrir fylgið þeirra.
- Þetta eru auðvitað útgerðarflokkarnir Sjálfstæðisflokkur og Framsókn
Þetta sýna gögn sem hægrimennirnir hafa sjálfir kallað eftir og kynnt. Með fyrirspurnum á Alþingi, ekki síst.
- Ætli fréttamenn á RÚV séu hræddir við Moggann?
Sérstök úttekt var gerð á viðmælendum frétta og fréttatengdra þátta RÚV á árunum 2009 og 2010, farið í saumana á viðmælendum í 18-fréttum RÚV-útvarps, 19-fréttum RÚV-sjónarps, í Speglinum, Kastljósi og Silfri Egils.
Þetta var sem sagt eftir Hrun og um það bil frá því að Búsáhaldauppreisnin kom ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar frá og við tók vinstri stjórn Samfylkingar og VG. Kosningabarátta spilaði inn í. Þetta eru fyrstu tvö ár Hrun-aðgerða.
Á umræddu tímabili voru fulltrúar stjórnmálaflokka landsins viðmælendur RÚV-þáttanna í heild í alls 1.484 skipti. Þar af voru viðmælendur frá
- Sjálfstæðisflokknum í alls í 549 skipti eða 37%. Flokkurinn sem þó fékk bara tæplega 24% í kosningunum 2009.
* - Viðmælendur voru frá Framsókn 270 skipti eða 18,2%, en flokkurinn fékk 14,8% í kosningunum.
* - Samfylkingin hafði megnið af tímabilinu forsætið og forsetastól Alþingis, en viðmælendur frá þessum flokki voru í 293 skipti eða 19,7%.Flokkurinn fékk 29,8% í kosningunum.
* - Viðmælendur frá VG voru 223 eða 15,7%, en flokkurinn fékk 21,7% í kosningunum.
* - Viðmælendur frá BH/Hreyfingunni voru 111 eða 7,5%, en flokkurinn fékk 7,2% í kosningunum.
Ég skal bera ábyrgð á þessu öllu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 21:56 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.