16.4.2015 | 12:05
Hér segir að skattar launamanna hafi lækkað fyrir árið 2013 væntanlega
- En hvaða launamenn eru að lækka í sköttum?
* - Skattar hafa ekki verið lækkaðir á láglaunafólki
* - En hálaunfólk fékk verulega lækkun á sínum sköttum hjá núverandi ríkisstjórn.
Hér er viðurkennt að öll launatengd gjöld fyrirtækjanna eru í raun umsamin laun launafólks við atvinnufyrirtækin.
En árum saman reyna menn gjarnan að halda því fram að það séu greiðslur fyrirtækjanna. Hér er líklega inni í myndinni svo nefnd tryggingagjöld sem fóru hæst í 8,5% af launum eftir hrun þegar atvinnuleysi var í hámarki.
Einnig er spurningin hvort miðað er við sjálfar launagreiðslurnar, landsframleiðslu og eða þjóðarframleiðslu. Eftir erlendum fyrirtækjum á Íslandi fjölgar eykst landsframleiðslan, en líklega dregst þjóðarframleiðslan saman. Þessi þróun getur einnig skekkt þessa mynd.
Þá er spurningin um lífeyrissjóðagreiðslurnar.
Atvinnurekendur tala gjarnan um að hlutur launamanna í lífeyrissjóðagreiðslum sé 4% af brúttólaunum.
En sannleikurinn er auðvitað allt annar, því heildargreiðsla launamanna er um 14 15,5% af öllum launum.
Þessi 10 12% er einnig umsamin laun samkvæmt kjarasamningum þar um og á sér bakland í lögum lífeyrissjóðaþátttöku allra.
Vísitölur geta verið varasamar í samanburði við aðrar slíkar í öðrum löndum.
T.d. ef vísitalan um ,,ráðstöfunartekjur heimilanna er notuð, er rétt að benda á þá staðreynd að tekjur og skattar eigenda einkafyrirtækjanna ásamt tekjum þeirra koma inn í þessa vísitölu og því er hún verulega villandi sem slík.
Ef hún er notuð til að mæla skattskyldar tekjur launafólks.
Egendur fyrirtækja eru gjarnan fjármagnseigendur sem greiða ekki nema 20% af nettótekjum fyrirtækjanna í í heildarskatta. Þ.e.a.s. bæði fyrirtækjaskatturinn og skattar eigenda þess.
Það væri óneitanlega fræðandi að bera saman skatta fyrirtækja á Íslandi og eigenda þeirra í samburði við OECD - löndin. Í þeim samburði væri einkafyrirtækin og eigendur þeirra tekin út úr til að sjá raunveruleikann
Skattbyrði launafólks léttist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Kjaramál | Breytt s.d. kl. 12:13 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.