Húsgögn og innréttingar hafa lengi verið framleidd úr pappír

  • Bæði á Íslandi og um víða veröld.

E.t.v. munu fangelsin framleiða nýja vörulínu fyrir IKEA sem er að mestu úr endurunnum páppír. Breytingin sem verður, að nú á framleiða plötur úr endurunnum pappír. 

En ,,MDF" plötur eru pappírsplötur sem verið hafa á markaði í áratugi. Þar áður eru enn aðrar pappírs-plötur sem kallaðar eru á Íslandi ,,MASONYT"  plötur eða karlitt á dönsku.

þessar plötur hafa verið framleiddar út úgangs trjáefni sem hefur verið of gróft efni í fínni pappír. Mjög oft eru þessar plötur spónlagðar eða sprautulakkaðar í lit.

  • Þá hafa verið til sölu pappírsplötur sem eru formpressaðar með ýmsu móti. Mjög oft eru þær pressaðar í eftirlíkingu af gömlu ,,fulningahurðunum"

  • Umhverfisvæn hugmynd er byggir á endurnýtingu á pappír sem kemur frá flokkuðu pappíssorpi. En það eru límefnin sem í plötunum eru sem segja mjög mikið hversu umhverfisvænar plöturnar sjálfar eru.

  • Þá spurningin um endur unnar MDF plötur sem víða fylla sorphauga nútímans.

  • Ekki eru nema ca. 55ár síðan spónaplötur tóku að berast til Íslands sem boðuðu algjöra byltingu. Það er eins með þær að límið í plötunum er tíðast mjög hættulegt mönnum og lífríkinu. Það væri mikilvægt að endurnýta þær í  eitthvað nýtilegt og gera límið skaðlaust um leið.

 


mbl.is IKEA framleiðir pappírshúsgögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband