Þetta er góð umræða sem varpar ljósi á stöðu fólks á Íslandi sem eru múslimar.

  • Það er mikilvægt að árásir einhverra stríðasmanna á franska þjóð og kenna sig við íslam í hagræðingarskyni verði ekki túlkaðar sem árásir á okkur íslenska þjóð.

Þetta er ekki árás á Ísland eða á íslenska menningu. Þetta er árás á franska stríðsherra sem stjórna ríkisstjórn Frakklands og halda uppi stórfelldu stríði í arapalöndum.

Franska ríkisstjórnin hefur sýrlandverið í umtalsverðum stríðsrekstri í Sýrlandi og eitthvað víðar fyrir botni Miðjarðarhafsins árum saman.  Í árásum franskra hermanna með fullkomnum stríðsflugvélum er ekki bara verið drepa einhverja hermenn heldur einnig á börn og aðra saklausa íbúa þessara landssvæða.

Þetta stríð frakka er ekki styrjöld háð fyrir íslendinga. Ekki heldur herferðir Bandaríkjamanna á þessum svæðum.sýrland

Íslendingar hafa ekki verið spurð sem þjóð og ekki Alþingi rætt málið á þeim nótum.En engin veit hvað utanríkisráðherrann gasprar yfir rauðvínsglasi á fundum erlendis.

 

Því er fáránlegt að við íslendingar tjáum okkur þannig að óþverrinn sem átti sér stað í París sé árás á íslenska menningu og mannlíf eða lífsform.

Ekki frekar en árásir vesturveldanna, tyrkja og rússa á þetta fólk er ekki á okkar ábyrgð.


mbl.is „Ekki í okkar nafni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband