Það er óþarft að reyna að gera lítið úr forsetanum

  • Hann þarf enga hjálp við það, ef út í það er farið

Þótt ég hafi verið ósáttur með frammistöðu Ólafs Ragnars á margan hátt og einkum eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kom út. þá er óþarfi að uppnefna hann.

  • En málflutningur hans um þennan hrylling í Belgíu er honum ekki samboðinn.

Hann minntist ekki orði á það, að Belgía ásamt ýmsum löndum í ESB eins og t.d. Frakkland eiga í stríði við fólk í Sýrlandi og í fleiri löndum fyrir botni Miðjarðarhafsins.

  • Þar eru drepnir menn í þúsundatali af herjum þessara landa á hverju ári.

Ef þessi herkóngahryllingur í Sýrlandi og í Írak eru hryðjuverkamenn sem ég efast ekkert um, eru Evrópskir hermenn í fullkomnum herflugvélum það ekkert síður.

  • En sérstaklega þeir þjóðhöfðingjar í Evrópu sem stjórna þessum ófögnuði.

Það er auðvitað alvarlegt þegar maður eins og Dr. Ólafur Ragnar Grímsson stjórnmálafræðingur og fyrrum prófessor í fræðunum skuli ekki minnast á báðar hliðar málsins.

En auðvitað var þetta ekki árás á lýðræðið á Íslandi eða í Evrópu yfirleitt sem stendur víða á brauðfótum í álfunni og en síður árás á kristna trú. Þetta var bara árás á konungsveldið Belgíu.

Belgía er auðvitað gamalt nýlenduveldi og hafa gert ýmsa miður fallega hluti sem þetta þjóðríki getur ekki státað af.

 
„„Við stöndum nú frammi fyrir nýrri ógn,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands um hryðjuverkin í Belgíu.“ Á þessum…
STUNDIN.IS
 
 

  1.  

mbl.is „Atlaga að lýðræði okkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband