17.6.2016 | 21:50
Frábært framtak fjallkonunnar á Seltjarnarnesi
- Það hefur nokkuð borið á þjóðernisrembingi síðustu árin. Þar hafa aðilar eins og Sigmundur Davíð og Morgunblaðið með Davíð Oddsson sem ritstjóra farið í farabroddi.
* - Jafnvel í ræðu forsætisráherrans í dag mátti greina slíka áráttu.
Ljóst er að þessir þjóðernissinnar hafa greinilega mætt miklum mótbyr frá almenningi með þessi viðhorf sín. En þau eiga sér djúpar rætur í þeim stjórnmálaflokkum sem standa að núverandi ríkisstjórn
Fjallkonan á Seltjarnarnesi ákvað að lesa upp kvæði eftir Austurískan flóttamann sem var gyðingur.
Á þessu hefði ég ekki átt von á fyrirfram. Kanski er að rofa eitthvað til í kollinum á íslendingum.
,,Því ákvað ég að flytja ljóð og minnast þeirra einstaklinga sem hafa flust til Íslands, samlagast þjóðinni og orðið Íslendingar, segir Svana Helen Björnsdóttir, fjallkonan á Seltjarnarnesi í ár.
Kanski er þetta andóf gegn gömlum ref sem vill verða forseti og er talsmaður fordómanna. Maðurinn sem lét ljósmyndarann laga aðeins til andlitið sem birtist á heilsíðu auglýsingum í dag. Ekki veit ég það.
Þá vekur það athygli að fjallkonan á Ísafirði er frá Kolumbíu.
Í því sambandi má rifja upp að þegar fyrstu íslensku flóttamennir komu til Kanada til að byrja nýtt líf tók á móti þeim miklu meira frost heldur en þeir höfðu nokkurntíma lifað á Íslandi.
Það voru indjánar sem björguðu lífi þessara íslensku flóttamanna sem voru látnir setjast að við Winnipegvatn.
Það er greinilegt að þar voru ekki fordómar á ferð. Íslendingar voru gjörsamlega vanmáttugir til takast á við frosthörkurnar sem fara iðulega niður í 30° á þessum slóðum yfir veturinn.
Rifjaði upp sögu fyrri flóttamanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 22:02 | Facebook
Athugasemdir
Ef þjóðhátíð er aðeins fyrir illaþokkaða fjárglæframenn á Alþingi- ættu venjulegir- Íslendingar sem hvort sem er búa í öðrum heimi og annari bylgjulengd- að færa sina þjóðhátið á ÞINGVÖLL ÞEIR ÞURFA ÞÁ EKKI SEM SJÚKIR OG FARLAMA ERU AÐ HLUSTA Á ORÐ FORSÆTISRÁÐHERRA- AÐ MVER OG EINN VELJI SÍNA FRAMTÍÐ !
HANN MUN EKKI EFAST UM A'Ð HANN LENDI EKKI Í VEIKINDUM EÐA SLYSI.
Erla Magna Alexandersdóttir, 19.6.2016 kl. 20:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.