Visnstri stjórnin gerði kraftaverk

Það hefur verið hálfgerð þjóðaríþrótt, að undanförnu,

að rakka niður störf vinstristjórnar.

Jóhanna og Steingrímur

Af því tilefni tók Davíð Kristjánsson saman nokkur atriði sem hollt er að rifja upp:

„Nokkur atriði af því sem ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu gerði á síðasta kjörtímabili:

  • Afnámu sérstök lífeyrisréttindi ráðherra og þingmanna sem sett voru þeim Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni til heiðurs.
    *
  • Breyttu lögum um Seðlabankann. Þá var í fyrsta sinn í sögunni gerð hæfniskrafa til Seðlabankastjóra sem fram til þess dags komu flestir úr stjórnmálum með skelfilegum afleiðingum fyrir okkur öll.
    *
  • Settu á sérstakan hóp sérfræðinga úr Seðlabankanum og utan hans til að leggja mat á efnahagslífið með tilliti til vaxta
    *
  • Breyttu lögum um skipan dómara sem komu í veg fyrir vina- og ættingjaráðningar í stöðu dómara
    *
  • Verðbólga fór úr 20% í 3% á kjörtímabilinu
    *
  • Vextir lækkuðu úr % í 5% á kjörtímabilinu
    *
  • Halli á rekstri ríkissjóðs fór úr 216 milljörðum í núll á kjörtímabilinu. (Náðu þeim árangri með því að afla tekna til jafns við óhjákvæmilegan niðurskurð)
    *
  • Sérstakur þrepaskiptur tekjuskattur var lagður á, því hærri sem launin voru því hærri skattprósenta.
    *
  • Hækkuðu ekki skatta á lægstu laun.
    *
  • Lögðu á auðlegðarskatt
    *
  • Endurgreiddu um þriðjung af vöxtum sem fólk greiddi af húsnæðislánum sínum
    *
  • Settu 12 milljarða í sérstakar vaxtabætur
    *
  • Hækkuðu almennar vaxtabætur
    *
  • Gripu til ýmissa aðgerða sem tugþúsundir heimila nýttu sér og eru verðlagaðar á um 85 milljarða króna
    *
  • Opnuðu nýjar leiðir fyrir ungt fólk til að hefja aftur nám í stað þess að vera án atvinnu. (Nærri 1.500 nýir námsmenn fóru í Háskóla Íslands vegna þeirra aðgerða)
    *
  • Tóku upp víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins um nýjar leiðir til náms fyrir ungt fólk
    *
  • Vörðu atvinnu með því að auka tekjur í stað þess að skera endalaust niður
    *
  • Settu sanngjarnt veiðigjald á útgerðina fyrst allra þjóða
    *
  • Læstu þrotabú gömlu bankanna inni í landi með lagasetningu í mars 2012. Án þeirra laga væri ekki hægt að semja um lausn á uppgjöri þrotabúanna. Framsókn og íhaldið greiddu atkvæði á móti lagasetningunni
    *
  • Settu lög um hvernig á að standa að sölu fjármálafyrirtækja í eigu eða hlutaeigu ríkisins til að koma í veg fyrir aðra einkavæðingu. Íhaldið og framsókn greiddu atkvæði á móti
    *
  • Sögðu upp öllum aukasamningum við starfsfólks stjórnarráðsins, t.d. vegna notkunar á bíl og fleira. Aðeins greitt samkvæmt reikningum eftir það
    *
  • Skáru verulega niður í utanlandsferðum ráðherra, þingmanna og embættismanna
    *
  • Aðeins formenn þingmanna fóru erlendis á fundi og varamenn fóru ekki í þeirra stað
    *
  • Lækkuðu laun þingmanna og hæstu laun embættismanna
    *
  • Settu siðarelgur fyrir ríkisstjórn og ráðherra
    *
  • Fækkuðu ráðuneytum úr 18 í 8
    *
  • Fækkuðu ráðherrum úr 12 í 8
    *
  • Gerðu umhverfisráðuneytið að fullbúnu öflugu ráðhuneyti
    *
  • Settu fram og samþykktum áætlun um verndun og nýtingu náttúruauðlinda
    *
  • Breyttu lögum um þingsköp Alþingis sem juku mjög vægi minnihlutans
    *
  • Fækkuðu þingnefndum
    *
  • Buðu stjórnarandstöðunni upp á formennsku í nefndnum
    *
  • Breyttu gjaldþrotalögum til að hjálpa því fólki sem komst ekki undan gjaldþroti
    *
  • Efldu fjármálaeftirlitið á kostnað bankanna
    *
  • Breyttu lögum um bankastarfsemi m.a. til að gera lágmarkskröfur um hæfni stjórnenda þeirra sem ekki hafði verið gert áður
    *
  • Lækkuðu dráttarvexti
    *
  • Breyttu reglum íbúðalánasjóðs til að draga úr greiðslubyrði heimila
    *
  • Gerðu umfangsmikla kjarasamninga í miðri kreppunni árið 2011
    *
  • Náðu að halda friði á vinnumarkaðinum allt kjörtímabilið þrátt fyrir alla erfiðleikana
    *
  • Juku framlög til velferðarmála úr 6,8% af landsframleiðslu í 7,8%
    *
  • Fjölguðu framhaldsskólum til að auka námsframboð fyrir ungt fólk
    *
  • Minnkuðum atvinnuleysi úr tæpum 10% í 4%
    *
  • Sendu AGS úr landi fyrr en áætlað var í upphafi
    *
  • Byrjuðu að endurgreiða lán sem norðurlöndin veittu okkur
    *
  • Endurgreiddum Færeyingum allt það sem þeir lánuðu okkur af rausnarskap sínum
    *
  • Losuðu okkur undan hryðjuverkjalögum sem Bretar settu á okkur undir hægristjórninni
    *
  • Héldu heilbrigðiskerfinu gangandi sem var ekkert sjálfsagt að hægt væri að gera
    *
  • Gerðu samkomulag við stjórnendur og starfsfólk Landspítalans um aðhald í rekstri til fjögurra ára og síðan uppbyggingu m.a. nýtt sjúkrahús
    *
  • Settu nokkrar stórframkvæmdir í gang í vegamálum
    *
  • Samþykktu og fjármögnuðu að fullu sérstaka fjár-festingaráætlun sem núverandi ríkisstjórn sló af
    *
  • Hæddust ekki að almenningi
    *
  • Gerðu ekki grín að mótmælendum
    *
  • Kvörtuðu ekki undan gagnrýni, heldur svöruðu henni með rökum
    *
  • Létu vinna ótal greiningar og skoðanir á stöðu almennings, nánast alltaf í samráði við aðra stjórnmálaflokka
    *
  • Veittu stjórnarandstöðunni aðgang að efnahags-ráðgjöfum ríkisstjórnarinnar og embættismönnum við að skoða og gera úttektir á hugmyndum og tillögum sem andstaða vildi láta gera
    *
  • Nokkuð gott. Ekki satt?".

mbl.is Björt leiðir í Reykjavík norður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott samantekt hjá þér Kristbjörn, væri óskandi að hægrapakkið rifjaði þetta aðeins upp.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 10.10.2016 kl. 08:13

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú ert nokkuð gefinn fyrir það fara með ósannindi og er þessi listi gott dæmi um það.  Lítið dæmi er að "Ríkisstjórn Fólksins" gerði ekkert samkomulag við starfsfólk og stjórnendur LSH um aðhald í rekstri næstu fjögur árin, heldur voru fjárveitingarnar til LSH skornar niður án  nokkurs samráðs þannig var LSH næstum lagður í rúst og hafa núverandi stjórnarflokkar mátt hafa sig alla við til að vinna úr eyðileggingarstarfssemi vinstri flokkanna á síðasta kjörtímabili.

Jóhann Elíasson, 10.10.2016 kl. 16:02

3 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Auðvitað var gert samkomulag við starfsfólk Landspítalans. Ef það hefði ekki verið gert hefði stór hluti fólks horfið á braut. Það var búið að svelta þessa stofnun allar götur frá 2003. Stofnunin var að niðurlotum komin og fólkið sem þar starfaði  var einnig að niðurlotum komið þega hægri stjórnin hrökklaðist frá völdum. Landsspítalinn átti ekki fyrir lyfjum sem hann þurfti að nota fyrir sjúklinga sína.

Það er auðvitað sárt að viðurkenna þennan óskunda Jóhann en svona var staðan. Þjóðin var nánast gjaldþrota átti ekki fyrir eldsneyti á bifreiðar landsmanna og Landspítalin var nánast stopp. 

Af naumu fé var strax hafist handa við hressa starfsemi spítalans við eins og hægt var. Starfsmenn lögðu sitt af mörkum bæði launalega og með verulega auknu álagi. 

Sem betur fer hefur uppbyggingastarf sjúkrahússins haldið áfram í tíð núverandi stjórnar og það er gott. En miklu meira þarf að koma til. 

Kristbjörn Árnason, 11.10.2016 kl. 09:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband