26.5.2017 | 12:43
Silki- yfirfrakki eða bitlingar fyrir flokksgæðinga
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-grænna, kann að koma orðum að hlutunum.
Hann segir hugmyndir hægri stjórnarinnar vera ógeðfellda aðför að sjálfstæði Landspítalans ef sett yrði pólitísk stjórn yfir spítalann.
Slík stjórn yrði auðvitað bara einskonar silkihúfa enda engin þörf fyrir slíka stjórn, nema til að útvega rétt trúuðum aðilum bitlinga.
Er gæti einnig gert það auðveldara að útvista fjölmörgum verkefnum til réttra velvildarmanna.
Íslendingar þekkja þessar gömlu aðferðir hægri flokkanna úr sögunni. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var að hygla sínum mönnum.
Ógeðfelld aðför að Landspítalanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 12:45 | Facebook
Athugasemdir
Getur einhver komið dæmi um að þessar stjórnir stofnan hafi nokkurn tíma gert eitthvað eða axlað einhverja ábyrgð
Löggildingarstofa (hljóp í burtu í heilu lagi þegar á bjátaði), Íbúðarlánasjóður (gat ekki ráðið framkvæmdastjóra svo ÁPÁ réði einhvern), Landsbókasafn, Fiskistofa osv. osv.
Grímur (IP-tala skráð) 26.5.2017 kl. 13:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.