Færsluflokkur: Dægurmál
16.10.2016 | 17:53
Flokkur með lík í lestinni
- Nú brosir Framsóknarflokkurinn til vinstri eins og oft fyrir kosningar
* - Það hefur ævinlega gefist vel hjá þessum flokki
* - En þetta vinstra glott flokksins hefur enga markbæra merkingu.
Framsókn brosti út í vinstra munnvikið fyrir síðustu kosningar og allir vita hvaða meining var í því.
Flokkurinn átti kost á því að mynda vinstri stjórn en kaus hægri stjórn eins og hann er vanur.
Þetta vinstra daður flokksins er hans síðasta von, síðan átta sig allir á því að þessi flokkur er með lík í lestinni.
Flokkurinn er því ekki stjórntækur.
Til í samstarf á grunni félagshyggju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2016 | 13:56
Það var hlutskipti vinstristjórnarinnar að moka flórinn
- Eftir forystu Sjálfstæðisflokksins frá 1991
Það er auðvitað ekki hægt að loka augunum fyrir þeirri staðreynd. essi flokkur virðist ekki kunna aðra aðferð í efnahagsstjórnun en þessa brauðmola stefnu sína.
Nú hafa efnhagsmálin og viðskiptalífið að taka á sig þá gömlu mynd sem þessi flokkur beitir ævinlega með því að skapa ósættanlegt ójafnvægi meðal þjóðarinnar.
Gamla trixið er á ferðinni þar sem afraksturinn af öllu atvinnulífinu er færður í hendur atvinnurekenda og þeirra sem njóta hæstu launanna.
Flokkurinn er að verða búinn að eyða öllum ávinningi af stjórn alþýðunnar í landinu eftir óstjórn hægri stjórnar gömlu valda flokkanna
Afgangurinn ekki meiri en hallinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2016 | 11:40
Góð ákvörðun, viðhorf hafa breyst í umhverfismálum hjá almenningi
- Það er auðvitað fráleitt að ákveðnir stjórnmálamenn taki að sér að axla ábyrgð á mistökum Landsnets
* - Það hefði aldrei getað skapast sátt um þennan ruðning sem stjórnarflokkarnir sýndu í þessu máli
* - Næsta ríkisstjórn hefði neyðst til þess að afnema yfirgangslög Ragnheiðar Elínar strax.
Það á auðvitað að láta yfirmenn í ríkisfyrirtækinu að axla sína ábyrgð.
Fyrirtækið hefur á liðnum árum rétt eins og Landsvirkjun vaðið yfir rétt almennings og eignarétt einstaklinga.
Það er augljóst að breyta verður lögum um Landsnet og jafnvel um Landsvirkjun líka. Taka verður umhverfis-vinkilinn inn í myndina hjá báðum þessum fyrirtækjum.
Rifja má upp vesenið á Reykjanesskaga.
Hraunið er friðað sem sem Landsnet ætlaði að ryðjast yfir með ofanjarðar háspennu loftlínu. Það hefur legið fyrir allan þennan tíma að til er önnur leið með þessa línu.
Að vísu aðeins lengri, en möguleiki að hægt verði að leggja þá línu í sátt við umhverfi og fólk.
Nú eru aðilar farnir að kenna hvor öðrum um mistök.
Frumvarp um raflínur lagt til hliðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2016 | 18:25
Skilaboð til Gunnars Braga?
- Nú er Framsóknarflokkurinn að breyta sinni stefnu í utanríkismálum.
En Framsóknarflokkurinn eða utanríkisráðherra úr röðum flokksins gerði sig beran um að vera einn mesti taglhnýtingur ESB og Bandaríkjanna í utanríkismálum á þessu kjörtímabili.
Gekk Gunnar Bragi í spor Halldórs Ásgrímssonar í þessum efnum, hann lét mynda sig bak og fyrir úti í Úkraínu er hann lagði blómvönd á einhvern vegg í höfuðborginni.
Eins og Halldór lét mynda sig með eiturefnasprengjur í Írak forðum. Hér má sjá efnavopn sem Halldór sagði að íslenskir hermenn hafi fundið
Hvoru tveggja var þátttaka íslenskra ráðherra án samþykkta Sameinuðu þjóðanna.
Þvinganir þurfi samþykki öryggisráðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2016 | 15:58
Ruðningur og valdbeiting í þágu erlendra aðila
- Um þessar mundir virðist Sjálfstæðisflokkurinn vera á fullu við að koma ýmsum eignum samfélagsins fyrir í velþóknanlegar hendur
* - Þá berast af því fréttir ótt og títt að fólk er að flykkjast inn í hin ýmsu embætti og kanski hafa embættin verið auglýst til umsóknar án þess að ég viti. Kanski ekki.
Nú reynir flokkurinn að berja í gegn ýmis umdeild mál með óeðlilegum ruðningi og með gamal kunnugum valdbeitingum sem flokkurinn er þekktur fyrir.
Hæst bar málið um lánasjóðinn þar sem átti að rýra lánakjör námsmanna.
Sama má segja um gamlar íhalds hugmyndir Péturs Blöndal um breytingar á lögum um Tryggingastofnun.
Það er reyndar nauðsynlegt að uppfæra bútabætt lög um þessa stofnun. Mest ber á hugmyndum ríkisstjórnarinnar að rýra ýmis réttindi fólks sem þiggur laun frá þessari stofnun.
Nú er ríkisstjórnin á komin flótta vegna styrks eftirlaunafólks sem hefur risið upp og krafist hærri eftirlauna. Þegar hefur stjórnin sent frá sér afar klaufalegar og ómarktækar yfirlýsingar.
Þá er hneykslið með eftirlaunarétt opinberra starfsmanna sem stóð til að rýra eina ferðina enn. Nú er rætt samræmd lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna og starfsmanna á almennum vinnumarkaði.
Breytt fyrirkomulag átti að taka gildi um áramótin. En það virðist eiga að gerast með því eins og áður sagði með því að rýra rétt opinberra starfsmanna.
ASÍ hefur aldrei verið saklaust að þeirri áráttu sinni að ráðast sífellt á opinbera starfsmenn. Þar hafa þeir átt samleið með samtökum atvinnurekenda og nú með flokki þeirra sem er Sjálfstæðisflokkurinn.
En það er auðvitað staðreynd að opinberir starfsmenn vilja gjarnan að réttindi allra í eftirlaunamálum séu með sama hætti. Sjóðastefnan þvælist fyrir, það er leið sem virðist ekki lífvænleg og þeir kostir sem sú leið átti að bera hefur brugðist algjörlega.
Það voru almennir félagar í kennarasamtökunum sem sáu að frumvarpið var ekki með þeim hætti að ætlunin hafi verið að standa við það sem ríkið hafði fullyrt að engin eftirlaunaréttindi yrði rýrð.
Síðasta málið er krafa þeirra Bakkabræðra að krefjast þess að náttúruverndarlög verði brotin eða afnumin. Svo hægt verði að fara með staura stæðu yfir friðað hraun.
Þeir virðast ekki þora að bíða eftir mati náttúru-verndar eftirlitsins. Vissulega erfiður hundur sem þessi lína á að lýsa upp. Þar geysast fram ríkisstjórnarflokkar með ofbeldi.
Þingi frestað vegna Bakkamálsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2016 | 11:46
Vinstri stjórnin gerði kraftaverk og var 100% heiðarleg
- Fyrsta heiðarlega ríkisstjórnin á Íslandi
* - Það hefur verið sterkur áróður á Íslandi
* - til að að rakka niður störf vinstristjórnarinnar.
Af því tilefni tók Davíð Kristjánsson saman nokkur atriði sem hollt er að rifja upp:
Nokkur atriði af því sem ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu gerði á síðasta kjörtímabili:
- Afnámu sérstök lífeyrisréttindi ráðherra og þingmanna sem sett voru þeim Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni til heiðurs.
* - Breyttu lögum um Seðlabankann. Þá var í fyrsta sinn í sögunni gerð hæfniskrafa til Seðlabankastjóra sem fram til þess dags komu flestir úr stjórnmálum með skelfilegum afleiðingum fyrir okkur öll.
* - Settu á sérstakan hóp sérfræðinga úr Seðlabankanum og utan hans til að leggja mat á efnahagslífið með tilliti til vaxta
* - Breyttu lögum um skipan dómara sem komu í veg fyrir vina- og ættingjaráðningar í stöðu dómara
* - Verðbólga fór úr 20% í 3% á kjörtímabilinu
* - Vextir lækkuðu úr % í 5% á kjörtímabilinu
* - Halli á rekstri ríkissjóðs fór úr 216 milljörðum í núll á kjörtímabilinu. (Náðu þeim árangri með því að afla tekna til jafns við óhjákvæmilegan niðurskurð)
* - Sérstakur þrepaskiptur tekjuskattur var lagður á, því hærri sem launin voru því hærri skattprósenta.
* - Hækkuðu ekki skatta á lægstu laun.
* - Lögðu á auðlegðarskatt
* - Endurgreiddu um þriðjung af vöxtum sem fólk greiddi af húsnæðislánum sínum
* - Settu 12 milljarða í sérstakar vaxtabætur
* - Hækkuðu almennar vaxtabætur
* - Gripu til ýmissa aðgerða sem tugþúsundir heimila nýttu sér og eru verðlagaðar á um 85 milljarða króna
* - Opnuðu nýjar leiðir fyrir ungt fólk til að hefja aftur nám í stað þess að vera án atvinnu. (Nærri 1.500 nýir námsmenn fóru í Háskóla Íslands vegna þeirra aðgerða)
* - Tóku upp víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins um nýjar leiðir til náms fyrir ungt fólk
* - Vörðu atvinnu með því að auka tekjur í stað þess að skera endalaust niður
* - Settu sanngjarnt veiðigjald á útgerðina fyrst allra þjóða
* - Læstu þrotabú gömlu bankanna inni í landi með lagasetningu í mars 2012. Án þeirra laga væri ekki hægt að semja um lausn á uppgjöri þrotabúanna. Framsókn og íhaldið greiddu atkvæði á móti lagasetningunni
* - Settu lög um hvernig á að standa að sölu fjármálafyrirtækja í eigu eða hlutaeigu ríkisins til að koma í veg fyrir aðra einkavæðingu. Íhaldið og framsókn greiddu atkvæði á móti
* - Sögðu upp öllum aukasamningum við starfsfólks stjórnarráðsins, t.d. vegna notkunar á bíl og fleira. Aðeins greitt samkvæmt reikningum eftir það
* - Skáru verulega niður í utanlandsferðum ráðherra, þingmanna og embættismanna
* - Aðeins formenn þingmanna fóru erlendis á fundi og varamenn fóru ekki í þeirra stað
* - Lækkuðu laun þingmanna og hæstu laun embættismanna
* - Settu siðarelgur fyrir ríkisstjórn og ráðherra
* - Fækkuðu ráðuneytum úr 18 í 8
* - Fækkuðu ráðherrum úr 12 í 8
* - Gerðu umhverfisráðuneytið að fullbúnu öflugu ráðhuneyti
* - Settu fram og samþykktum áætlun um verndun og nýtingu náttúruauðlinda
* - Breyttu lögum um þingsköp Alþingis sem juku mjög vægi minnihlutans
* - Fækkuðu þingnefndum
* - Buðu stjórnarandstöðunni upp á formennsku í nefndnum
* - Breyttu gjaldþrotalögum til að hjálpa því fólki sem komst ekki undan gjaldþroti
* - Efldu fjármálaeftirlitið á kostnað bankanna
* - Breyttu lögum um bankastarfsemi m.a. til að gera lágmarkskröfur um hæfni stjórnenda þeirra sem ekki hafði verið gert áður
* - Lækkuðu dráttarvexti
* - Breyttu reglum íbúðalánasjóðs til að draga úr greiðslubyrði heimila
* - Gerðu umfangsmikla kjarasamninga í miðri kreppunni árið 2011
* - Náðu að halda friði á vinnumarkaðinum allt kjörtímabilið þrátt fyrir alla erfiðleikana
* - Juku framlög til velferðarmála úr 6,8% af landsframleiðslu í 7,8%
* - Fjölguðu framhaldsskólum til að auka námsframboð fyrir ungt fólk
* - Minnkuðum atvinnuleysi úr tæpum 10% í 4%
* - Sendu AGS úr landi fyrr en áætlað var í upphafi
* - Byrjuðu að endurgreiða lán sem norðurlöndin veittu okkur
* - Endurgreiddum Færeyingum allt það sem þeir lánuðu okkur af rausnarskap sínum
* - Losuðu okkur undan hryðjuverkjalögum sem Bretar settu á okkur undir hægristjórninni
* - Héldu heilbrigðiskerfinu gangandi sem var ekkert sjálfsagt að hægt væri að gera
* - Gerðu samkomulag við stjórnendur og starfsfólk Landspítalans um aðhald í rekstri til fjögurra ára og síðan uppbyggingu m.a. nýtt sjúkrahús
* - Settu nokkrar stórframkvæmdir í gang í vegamálum
* - Samþykktu og fjármögnuðu að fullu sérstaka fjár-festingaráætlun sem núverandi ríkisstjórn sló af
* - Hæddust ekki að almenningi
* - Gerðu ekki grín að mótmælendum
* - Kvörtuðu ekki undan gagnrýni, heldur svöruðu henni með rökum
* - Létu vinna ótal greiningar og skoðanir á stöðu almennings, nánast alltaf í samráði við aðra stjórnmálaflokka
* - Veittu stjórnarandstöðunni aðgang að efnahags-ráðgjöfum ríkisstjórnarinnar og embættismönnum við að skoða og gera úttektir á hugmyndum og tillögum sem andstaða vildi láta gera
* - Nokkuð gott. Ekki satt?".
Boðar skýrslu um umfang aflandsfélaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2016 | 00:30
Visnstri stjórnin gerði kraftaverk
Það hefur verið hálfgerð þjóðaríþrótt, að undanförnu,
að rakka niður störf vinstristjórnar.

Björt leiðir í Reykjavík norður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.10.2016 | 22:43
Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar eiga eldri borgarar sem eru í sambúð ekki að fá neina hækkun á eftirlaunum
Í dag hef ég lesið afar óskýra orðsendingu frá ríkisstjórninni sem fjallar um væntanlega hækkun á eftirlaunum eldri borgara og hækkun á launum öryrkja.
Hvað þýðir þetta orðalag?
,,Eldri borgurum sem halda einir heimili verði tryggðar 300 þúsund krónur á mánuði frá 1. janúar 2018, enda hafi þeir ekki aðrar tekjur sem hafa áhrif á fjárhæð bótanna. Bæturnar hækki í 280 þúsund krónur um næstu áramót".
Hér er aðeins talað um þá eldri borgara sem búa einir í heimili. Ekki er minnst orði á þá sem eru í sambúð með öðrum. Þ.e.a.s. hjón.
Eiga slíkir aðilar ekki að fá neina hækkun? Þetta er a.m.k. afar loðið orðalag sem getur þýtt hvað sem er. Það er auðvitað ekki boðlegt fyrir stjórnvöld að senda slíkan texta frá sér.
Hækka framfærslu aldraðra og öryrkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
- Þeir sem eru 8 ára finnst það býsna hár aldur og að þeir hafi heilmikla reynslu enda á 3. ári í skóla.
* - Það var gríðarlegt að átak að rífa þjóðina upp úr dýi sem hún var sokkin í.
* - En margar hendur vinna létt verk, sem á Íslandi var launafólk , aldraðir og öryrkjar sem unnu afrekið.
Allann tímann vældu þeir sem voru búnir að keyra sig og fjölskyldu sína á kaf í skuldafeni löngu fyrir hrun og íbúðir eða raunar stórhýsi löngu komin á síðasta snúning í gjaldþrotameðferð.
Það var fólkið sem krafðist þess að þjóðfélagið kæmi og borguðu skuldir þeirra. Það venjulega og oftast ungt launafólk sem hafði látið glepjast af gylliboðum bankanna þagði þunnu hljóði og eiginlega skammaðist sín. Það beit á jaxlinn og setti undir sig höfuðið og herti sig í þrældómnum.
Það hafði nefnilega komið á daginn að það sem gamla settið hafði sagt um skuldsetningarnar var rétt. Fólkið sem þekkti þessar íslensku kreppur sem hafa ævinlega lagst á launafólk eins og mara á 10 ára fresti. Eða eins og veturinn í Múmindal.
Nú eru þegar farin að blikka ýmis varúðarljós í efnahagsmálum þjóðarinnar. Það án þess að ýmislegt sem hafði látið undan síga í kreppunni hafi verið lagfært. Þótt þjóðin hafi ekki farið í stórfelldar skuldsetningar enn, er það ekki stjórnvöldum að þakka.
En RÚV birtir frétt frá Financial Times
Erlendir ferðamenn björguðu efnahag Íslands eftir bankahrunið en andrúmsloftið núna er farið að minna óþægilega mikið á góðærið í kringum 2007. Þetta er meginstef greinar sem birtist á vef Financial Times í morgun þar sem er meðal annars rætt við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, Má Guðmundsson, seðlabankastjóra, og nokkra stjórnendur innan íslensku ferðaþjónustunnar.
En þetta sauðsvarta íslenska launafólk þarf ekki að láta heims-blaðið segja sér neitt um það ástand sem nú er farið að glitta í.
Það er auðvitað morgunljóst að gömlu valdaflokkarnir kunna engin önnur ráð í efnastjórnun en þau sem framkalla sífelldar kreppur yfir Ísland.
Á þessum 8 árum, hefðu landsfeðurnir átt að vera búnir að læra að brauðmola stjórnlistin dugar ekki. Frjálshyggjan er að þrotum komin.
Landsframleiðsla á mann óvíða hærri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 9.10.2016 kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2016 | 14:44
Skatta undanskotin
- Ásmundur G Vilhjálmsson, skattalögfræðingur og kennari við Háskóla Íslands varpaði skýru ljósi á það hvernig erlendir aðilar sem eiga fyrirtæki á Íslandi koma sér hjá því að greiða skatta á Íslandi, í Kastljósi.
* - Allt samkvæmt íslenskum lögum að sagt er.
Benti hann á, að með gildandi lögum væri í raun hægt að leggja skatta á þessi fyrirtæki og benti á lagagreinina sem þarf að nýta. En benti á um leið, að styrkja yrði skattayfirvöld af stjórnvöldum og þjóðinni til þess að skattayfirvöld hafi getu til þess að virkja þessa lagagrein.
En það er reyndar staðreynd að stjórnmálaflokkar á Íslandi standa ekki allir að baki slíkum aðgerðum. Nægir að nefna ræður formanna Sjálfstæðisflokksins til vitnis um andstöðu þess flokks til þessa til slíkra verka.
En þetta á reyndar við um íslensk fyrirtæki líka. Þekkt var fyrir hrun að íslendingar keyptu innlend fyrirtæki með því að skuldsetja fyrirtækin til að geta greitt kaupverðið. Síðan voru þau hreinsuð að innan eins og kallað var.
Þetta leiddi til þess að fyrirtækin skulduðu nú svo mikið, að arðurinn af framleiðslunni fór í greiða vexti af gríðarlegum skuldum og þau sýndu ekki hagnað og greiddu enga skatta.
Alveg nýlega voru sagðar af því fréttir hversu fá fyrirtæki greiddu skatta á Íslandi og hversu mörg fyrirtæki væru látin rúlla og stofnuð ný með nýrri kennitölu.
Allt eru þetta mismunandi tilbrigði við sama leikinn sem er að ná undan eignum og eða tekjum án þess að greiða skatta og gjöld.
Þessi leikur er enn leikinn með öðrum tilbrigðum enn áður og af meiri varfærni. Allt veldur þetta því að launmenn verða að bera hærri skatta til að halda uppi samfélaginu.
- Enn ein fléttan? Selt til fyrirtækis sem er í eigu fyrirtækis...og svo er seljandinn eilnhvers staðar eigandi fyrirtækis sem á fyrirtæki sem á fyrirtæki...
Nova selt bandarísku fyrirtæki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)